TÚRISTAGÖNG
28.8.2018 | 09:31
Flott fyrir rúrufyrirtækin á Ísafirði. Þegar þessi göng verða klár geta þau rúllað með farþegaskipafarþega í gegn um fjall í stað þess að fara yfir það og að snúnings plássinu við Dynjanda og á Ísafjörð aftur. Annað gagn verður ekki af þessum göngum næstu fimmtán - tuttugu árin.
Hafa grafið 65% Dýrafjarðarganga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ble ble bla . . .
21.8.2018 | 10:19
Við höfum tekið eftir því að umtalsverður hópur fólks hefur komið við á básnum okkar og haft á orði að þótt það myndi virkilega vilja heimsækja Ísland heim muni það ekki gera það fyrr en hvalveiðum verði hætt,... - Ef og hefði kannski þá en þó hugsanlega ekkki ef. Þetta segir í raun ekki neitt annað en það að þessi einstaki starfsmaður er á móti hvalveiðum og vill hugsanlega að fæðuöflun mannskepnunnar byggist á einhverskonar virðingarröð. Sum dýr dýr verði á heilagra dýra lista en önnur vanheilög megi éta.
Koma ekki út af hvalveiðunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Guðmundur Ingi og Trump
16.8.2018 | 12:12
Ekki átti ég von á því að Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra, færi leið Trumps, forseta bandaríkjanna, að afneita vísindum. Hann telst líklega á hálum ís, þar sem umhverfismál eru alvöru málaflokkur, sem byggir meðal annars, að mjög miklu leyti öllu heldur, á vísindum.
Þetta upphlaup hjá GIG, að hann efist um sjálfbærni hvalveiða, gerir hann vanhæfan í starfi, því hann segir í raun að grunnstoð umhverfismála, vísindin, dugi sér ekki.
Enginn vafi um sjálfbærni veiðanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Jafnvægi og heilagleiki
10.8.2018 | 13:54
Hvers vegna skyldi eitt dýr vera heilagra öðrum?
Hvers vegna skyldum við marka ójafna nýtingu loft-, lands- og lagardýra?
Hver eru rökin?
Gáfur?
Ljótleik/fegurð?
Hljóð?
Lykt?
Átrúnaður?
Sjálfbærni: ekki spurning!
Veiðum hval!
Það er ekkert rangt við þetta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)